Opið í dag

12:00-18:00

Sequences

01.10.2027
–02.01.2028
Sequences13_3-scaled

Sýningarstjórn

Raphael Fonseca & Yina Jiménez Suriel

Sequences er alþjóðleg listahátíð sem haldin er annað hvert ár í Reykjavík og fer nú fram í 13. sinn. Hátíðin leggur áherslu á framsækna list og miðar að því að efla og styrkja tengslanet listamanna þvert á landamæri. Sequences var stofnuð af hinum listamannareknu Kling & Bang, Gallerí Dvergi, Gallerí Bananas og Nýlistasafninu ásamt Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar árið 2006. Listrænir stjórnendur hátíðarinnar eru í þetta sinn þau Raphael Fonseca og Yina Jiménez Suriel.

Raphael Fonseca er sýningarstjóri og rannsakandi sem hefur áhuga á snertiflötum listasögu, skáldskapar, seiglu, unaðs og kennslu. Raphael er fæddur í Rio de Janeiro í Brasilíu en býr í Denver í Colorado í Bandaríkjunum. Hann starfar sem sýningarstjóri og deildarstjóri rómönsk-amerísku samtímalistardeildarinnar í Denver Art Museum.

Yina Jiménez Suriel er sýningarstjóri og rannsakandi sem í verkum sínum kannar ímyndunarafl, frelsishreyfingar samtímans og hreyfingu sem pólitískt afl. Hún er fædd og búsett í Dóminíska lýðveldinu. Hún er sýningarstjóri hjá The Current IV, þverfaglegs verkefnis á vegum Thyssen-Bornemisza Art Contemporary, og er ritstjóri rómönsk-amerísku og Karíbahafs-útgáfu blaðsins Contemporary And (C&).

Sýningarstjórn: Raphael Fonseca & Yina Jiménez Suriel.

Mynd: Sýningarstjórar Sequences 13 Yina Jiménez Suriel & Raphael Fonseca. Ljósmyndari: Vikram Pradhan.