Opið í dag

12:00-18:00
Fræðsla

Smiðjukassar standa safngestum til boða í móttöku safnsins, til afnota á meðan heimsókn stendur, og fylgir frítt með hverjum greiddum aðgangi. Árskorthafar geta nálgast smiðjukassa í hverri heimsókn á safnið. Í smiðjukassanum er efniviður til listsköpunar og geta gestir notið samverustunda í Stúdíói Gerðar með skapandi verkefni í höndunum.

Þrír mismunandi kassar eru í boði með ólíkum efnivið

Teiknileikir: blöð, póstkort til að teikna á, litir, yddari, strokleður, litaform
3-D pennaæfingar: 3-D penni, mismunandi litir í pennann, mót, rúðustrikuð motta, mót
Klippimynda- og skúlptúrgerð: lituð blöð, lím, pappírssogrör, form
Smiðjukassarnir eru sótthreinsaðir eftir hverja notkun.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner