Opið í dag

12:00-18:00

Menning á miðvikudögum | Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum

24.11.2021
12:15
–12:45
Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur verður með leiðsögn um sýningu listamannanna Bryndísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson, Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum miðvikudaginn 24. nóvember kl. 12.15.  Samhliða sýningu þeirra Bryndísar og Mark í Gerðarsafni verður sýningin Visitasíur opnuð í Listasafninu á Akureyri. Æsa er sýningarstjóri sýningarinnar Visitasíur þar sem verk Bryndísar og Mark verða til sýnis og er sú sýning hluti af listrannsóknarverkefninu Ísbirnir á villigötum, unnið í samstarfi sérfræðinga á sviði myndlista, þjóðfræði og náttúru- og umhverfisfræði. Æsa býður því upp á áhugavert samtal á milli þessara tveggja sýninga. Bryndís og Mark staðsetja list sína sem rannsóknar- og samfélagslist og nota gjarnan samspil manna og dýra í verkefnum sínum til að skoða málefni er varða sögu, menningu og umhverfið. Með listrannsóknum sínum kveikja þau hugleiðingar og samtal um hvernig heimurinn er að breytast og hlutverk okkar mannfólksins í þeim breytingum. Listamennirnir nálgast listsköpun sína með vistfræðilegri og heildrænni sýn. Verk þeirra eru þverfagleg í eðli sínu og taka gjarnan form innsetninga með skúlptúrum, fundnum hlutum, vídeóverkum, hljóði, teikningum, ljósmyndum og textum.  Sýningarstjóri sýningarinnar Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum er Becky Forsythe. Um Visitasíur: Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson | Listasafnið á Akureyri (listak.is) Mynd: Anton Brink.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner