Að rekja brot

Tracing Fragments kynningarmynd.jpg

02.02.2023-21.05.2023

Að rekja brot er samsýning listamanna frá frá Íslandi, Mexikó, Pakistan, Bandaríkjunum, Grænlandi, Danmörku, Noregi, Nígeríu og Finnlandi; Kathy Clark, Frida Orupabo, Abdullah Qureshi, Sasha Huber, Hugo Llanes, og Inuuteq Storch.  Á afar ólíkan máta skoða þau hvernig þjóðerni tengist sjálfsmyndinni, að hvaðan við komum sé uppspretta persónuleikans. Verkin þeirra eiga það sameiginlegt að rannsaka flókna sögu nýlendu- og kynþáttaofbeldis, gagnrýna og endurskrifa frásagnir um kúgun og eignarnám og endurheimta hugtök eins og yfirvald og fórnarlamb. Með því að vefa, sauma, mynda, og skeita saman endurheimta listamennirnir sögulegar aðferðir við handverk, ljósmyndun og heimildasöfnun. Hver og einn listamaður á sinn eigin frumlega máta rannsakar sína eigin sögu, endurskrifar og opnar á samtal um áður þaggaðar frásagnir þeirra kúguðu. Markmið sýningarinnar er að vera uppspretta samtals og rýna í sögur um landnám, þrælahald, kynþáttafordóma, kúgun og eignarnám. Tracing Fragments varpar ljósi á frásagnir þeirra sem kúgaðir voru og gefa þeim rödd til að skrifa sína eigin sögu í gegnum ólíka listræna miðla. 

Listafólk: Abdullah Qureshi, Frida Orupabo, Hugo Llanes, Inuuteq Storch, Kathy Clark og Sasha Huber.

Sýningarstjóri: Daría Sól Andrews

Sýningin er styrkt af Nordic Culture Fund.

Nordisk kulturfond.png

myndlistarsjodur_logo135.jpg

NAPA-Logotype-CMYK-ENG.jpg

Frame_logo_CAF_CMYK_Black.jpg