Opið í dag

12:00-18:00

Útlína

utlina-loka-5
06.04.2019-08.09.2019 06.04.2019-08.09.2019 Útlína er sýning á verkum úr safneign Gerðarsafns frá 1950 til dagsins í dag. Á sýningunni er útlínan notuð til þess að tengja verk þvert á miðla. Línan flæðir á milli teikninga, málverka og prentkverka og útlínan öðlast eigið líf í (þrívíðu) formi skúlptúra og rýmisverka. Útlínan verður allt í senn: þráðurinn á milli verka, afmörkun og endaleysa. Útlína Sýningin er hluti af +Safneigninni, þar sem gestum er gefinn kostur á að líta á bak við tjöldin og kynnast því sem að öllu jöfnu tilheyrir innra starfi safnsins. Unnið verður að rannsóknum á listaverkunum fyrir opnum dyrum og mun gagnagrunnur um verkin vaxa meðan á sýningu stendur. Á sýningunni Útlína má því sjá verk samhliða handteiknuðum leiðbeiningum, ljósmyndum, viðtölum við listamenn og skráningarspjöldum. +Safneigninni Útlína Listamenn: Anna Hallin | Barbara Árnason | Gerður Helgadóttir | Hólmfríður Árnadóttir| Hrafnkell Sigurðsson | Hreinn Friðfinnsson | Katrín Sigurðardóttir | Kristján Davíðsson | Rúrí | Theresa Himmer | Valgerður Briem Anna Hallin | Barbara Árnason | Gerður Helgadóttir | Hólmfríður Árnadóttir| Hrafnkell Sigurðsson | Hreinn Friðfinnsson | Katrín Sigurðardóttir | Kristján Davíðsson | Rúrí | Theresa Himmer | Valgerður Briem Sýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir & Hrafnhildur Gissurardóttir Listamaður: Theresa Himmer In house production I-III, 2017 In house production I-III Mynd: Stefan Oidtmann
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner