Velkomin á Furðuverksmiðjuna, skúlptúrsmiðju fyrir fjölskyldur með Selmu Hreggviðsdóttur myndlistarmanni, sunnudaginn 17. september í Gerðarsafni.
Í smiðjunni munum við uppgötva höggmyndir Rósu Gísladóttur og í framhaldi móta furðuverur úr margskonar efnivið, húða þær með gipsi og öllum litum regnbogans!
Smiðjan hentar vel fyrir börn sem eru 6 ára og eldri. Pláss er takmarkað og það þarf að skrá sig í smiðjuna. Boðið er upp á tvær tímasetningar, annars vegar kl. 13 og hins vegar kl. 14. Vinsamlegast sendið tölvupóst til að skrá barn: thorgerdurth@kopavogur.is. Þátttaka er börnum að kostnaðarlausu.