Opið í dag

12:00-18:00

Undanfarin ár hafa Gerðarsafn og Náttúrusafn Kópavogs unnið að fræðslu verkefninu List og náttúra. Börnum í elstu deild leikskóla og yngstu bekkjum grunnskóla í Kópavogi var boðið í fræðslu á báðum söfnum þar sem náttúru- og listkennsla fléttuðust saman. 

Söfnin tvö hafa einnig tekið þátt í alþjóðlegu samstarfsverkefni sex safna frá fimm mismunandi löndum sem vinna með tengsl lista og náttúru í listkennslu, þ.e. Gerðarsafn, Náttúrusafn Kópavogs, Fondation Beyeler (Sviss), Museum Sinclair-Haus (Þýskalandi), Moderna Museet (Svíþjóð) og Louisiana Museum of Modern Art (Danmörk). Söfnin hafa hist árlega síðastliðin fimm ár til þess að eiga í jafningjafræðslu, miðla reynslu og efla faglegt samstarf um list og náttúru.

Í júní 2026 kom út rafbók sem dregur saman reynslu þessara sex safna á sviði list- og náttúrukennslu. Hægt er að hlaða henni niður með því að ýta á kápuna hér að neðan.

List og náttúra