Opið í dag

12:00-18:00

SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR | Baldur Geir

17.10.2015
–03.01.2016
baldur-geir-skulptur-skulptur-1-1
17.10.2015 – 03.01.2016 SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR er röð einkasýninga sem kannar stöðu skúlptúrsins sem miðils í íslenskri samtímalist. Fyrstu tvær einkasýningarnar eru með verkum Baldurs Geirs Bragasonar og Habbyjar Oskar. Baldur Geir Bragason (1976-) útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og lauk síðar mastersnámi frá skúlptúrdeild Kunsthochschule Berlin í Þýskalandi árið 2008. Hann hefur verið starfandi sem myndlistarmaður frá útskrift og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og haldið einkasýningar. Titill sýningarraðarinnar vísar í sýninguna Skúlptúr/skúlptúr/skúlptúr sem var haldin á Kjarvalsstöðum 1994 og var ætlað að gefa yfirlit yfir samtíma höggmyndalist með verkum 27 íslenskra listamanna. Sýningin opnaði sama ár og Gerðarsafn var opnað fyrir gestum í Kópavogi. Gerðarsafn er stofnað til heiðurs Gerði Helgadóttur myndhöggvara (1928-1975) en hún var brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist og tók fyrst kvenna forystu í höggmyndalist hérlendis.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner