
Karl Kvaran fæddist árið 1924 og lést 1989. Hann var einn þekktasti abstraktmálari landsins og var afar afkastamikill listamaður. Karl hvarf aldrei frá sinni óhlutbundnu túlkun í verkum sínum. Samspil lita og lína varð að hans persónulega stíl sem hann varð þekktur fyrir. Verk Karls Kvaran eru tímalaus og þekkjast auðveldlega vegna hans persónulega stíls. Karl var einn helsti fulltrúi og talsmaður strangflatarlistarinnar og hélt hann alltaf ótrauður sínu striki þrátt fyrir það mótlæti sem listastefnan fékk á sig. Eftir því sem leið á ferilinn fóru verk hans að verða stærri. Þegar að Karl missti konuna sína árið 1970 fóru formin að breytast úr því að vera hörð yfir í sveigðari form. Mögulega var þetta leið listamannsins til þess að veita verkum sínum ljóðrænan blæ.
“Alla tíð hélt hann tryggð við hreina liti og skýrt afmörkuð form; myndir hans tærar og virtust stundum vera skyldar tónlist, enda var Karl afar tónvís og mikill unnandi klassískrar tónlistar“ kemur fram í umfjöllun í Morgunblaðinu árið 1996 eftir Gísla Sigurðsson. Listamaðurinn stundaði myndlistarnám hjá Marteini Guðmundssyni, Birni Björnssyni, Jóhanni Briem og Finni Jónssyni. Karl stundaði nám við Handíða- og myndlistaskólann í Reykjavík 1941-45, við Listaháskólann í Kaupmannahöfn og í einkaskóla Rostrub Boegesen 1945-49.