Verið velkomin þann 23. maí klukkan 13:00 – 15:00 í smiðjuna Prent & óhlýðni með Almari Steini Atlasyni. Þar verður lagt áherslu á að kenna aðferðir til þess að tjá sig með myndmáli í almannarými. Kennt verður að nota stensla, líma upp plaköt og einföld leið til þess að búa til blöðunga til þess að dreifa.
Almar Steinn Atlason er myndlistarmaður starfandi í Reykjavík. Almar er sennilega þekktastur fyrir gjörninga sína, oft í almannarýmum, en þeir eiga það til að kitla fólk aðeins í óhlýðni taugina. Einnig hefur Almar átt góðu gengi að fagna í málverkum.