Opið í dag

12:00-18:00

Stafasaumur í anda Valgerðar Briem | Smiðja fyrir fullorðna

05.12.2026
14:00
–16:00

Verið hjartanlega velkomin í útsaumssmiðju fyrir fullorðna með Láru Magneu Jónsdóttur laugardaginn 5. desember 14:00 – 16:00. Lára ætlar að kenna þátttakendum að sauma út stafi úr leturgerðum Valgerðar Briem.

Smiðjan er haldin í tilefni nýútkominni Stafabók Valgerðar Briem sem hefur að geyma úrval leturgerða sem Valgerður hannaði fyrir útsaum á árunum 1960-1967.

Smiðjan er ókeypis en efnivið er hægt að kaupa í Safnbúð Gerðarsafns.
Skráning á smiðjuna fer fram í gegnum tölvupóst agnes.arsaelsdottir@kopavogur.is og í síma 441-7600.