Opið í dag

12:00-18:00

Valgerður Briem

Kona/blóm

Efni Safneign
Stærð  23 x 29,5 cm

Teikningar og skissur Valgerðar Briem (1914-2002) gefa til kynna að um var að ræða einstaklega hæfileika og hugmyndaríka listakonu. Valgerður starfaði lengi sem myndlistarkennari og spruttu margar teikningar og skissur út frá því. Hún notaðist við fjölbreyttar aðferðir í kennslunni og vildi listamaðurinn Erró meina að Valgerður Briem hafi verið áhrifamesti kennari hans og sagði hann eftirfarandi „hún hafði ótrúlegt lag á að vekja fólk til umhugsunar um umhverfi sitt og sjálft sig sem er einkar mikilvægt fyrir myndlistarfólk. Hún veitti fólki líka gott veganesti með því að hvetja það áfram en hún hvatti nemendur sína til að vinna að alvöru.“ Geómetrísk form spila skemmtilega saman í verkinu Kona/blóm og brjóta myndina upp og er líkt og þeim hafi verið raðað upp aftur til þess að framkalla fleiri en eitt sjónarhorn. Það mætti því segja að verkið sé á ákveðinn hátt innblásið af kúbisma. Árið 2009 gáfu börn Valgerðar Gerðarsafni veglega gjöf eða um 1640 verk eftir Valgerði og eru teikningar þar í fyrirrúmi.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner