Opið í dag

12:00-18:00

Gerður Helgadóttir

Óþekkti pólitíski fanginn

Efni Safneign
Stærð  50,8 x 27 x 30 cm

Verkið „Óþekkti pólitíski fanginn” eftir Gerði er eitt af hennar þekktari verkum og er það til sýnis á grunnsýningu á verkum Gerðar á neðri hæð Gerðarsafns. Það er 50,8 x 27 x 30 cm að stærð og er gert úr járni. Með járninu náði Gerður fram fíngerðum formum og hægt að teygja járnið og sveigja. Tómarúmið inn í verkinu öðlast jafn mikla merkingu og formið, sem er það sem einkennir gjarnan járnverk Gerðar. Í verkinu er fangi að reyna brjótast út úr fangaklefa með miklum tilþrifum.

Gerður Helgadóttir fæddist árið 1928 og lést 1975 og því var listrænn ferill Gerðar fremur stuttur, eða um 30 ár. Þrátt fyrir stuttan feril skildi hún eftir sig gífurlegan fjölda listaverka. Eins og margir vita vann Gerður með ýmis efni í listsköpun sinni og er óhætt er að segja að sköpunarkraftur og afburða listrænir hæfileikar hafi verið hennar náðargáfa. Í viðtali árið 1954 sagði Gerður: „ekki skiptir máli í hvaða stíl menn vinna, því stíllinn er aðeins ytra form.“

Erfingjar Gerðar Helgadóttur (1928–1975) færðu Kópavogsbæ árið 1977 um 1400 listaverk úr dánarbúi listakonunnar en hún lést árið 1975 aðeins 47 ára að aldri. Skilyrði fyrir gjöfinni var að Kópavogsbær skyldi byggja listasafn, sem tengdist nafni Gerðar, geymdi og sýndi verk hennar og héldi að öðru leyti minningu hennar á lofti. Erfingjar Gerðar Helgadóttur (1928–1975) færðu Kópavogsbæ árið 1977 um 1400 listaverk úr dánarbúi listakonunnar en hún lést árið 1975 aðeins 47 ára að aldri. Skilyrði fyrir gjöfinni var að Kópavogsbær skyldi byggja listasafn, sem tengdist nafni Gerðar, geymdi og sýndi verk hennar og héldi að öðru leyti minningu hennar á lofti.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner