
Myndlistarkonan og kvikmyndagerðarkonan Ragnheiður Gestsdóttir (1975) sækir mikinn innblástur í bakgrunn sinn í sjónrænni mannfræði sem hún lærði í London. Hún lauk einnig framhaldsnámi í myndlist í New York. Ragnheiður vinnur með hina ýmsu miðla, s.s. innsetningar, ljósmyndir, kvikmyndir og skúlptúra, og er listsköpun hennar því mjög fjölbreytt. Verk hennar hafa m.a. verið sýnd hér á landi, á hinum Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum. Gerðarsafn festi kaup á verkinu Súla árið 2017 í kjölfar sýningarinnar Innra, með og á milli sem sett var upp á Gerðarsafni og hefur verkið verið í safneign síðan. Súla er hluti úr myndaröðinni Hvaðan kom tímalínan? eftir Ragnheiði.
Verkið er stórt og glæsilegt eða 218×110 cm og er úr marmara og lími. Marmari er einstaklega sterkt efni en hefur á sama tíma mikla mýkt og er auk þess mjög fágað efni. Það er oft mikil og falleg hreyfing í marmara sem gerir hann tilvalið efni í listsköpun. „Í verkinu Súla er ímynd klassískrar grískar súlu skorin út úr langri, þunnri, bleikri marmaraplötu, og myndar eins konar andhverfu sína. Þegar marmari er mótaður í lóðrétta súlu vitnar hann um burðarþol sitt og styrk og verður tákn varanleika. Þegar marmari er skorinn í þunnar, langar plötur (t.d. borðplötu í íburðarmiklu eldhúsi), umbreytist hann í brothætta lúxusvöru sem fara þarf ákaflega gætilega með í flutningi. Með því að beina athygli að þessari spennu ólíkra eiginleika sem búa í marmaranum sem efnivið, varpar Ragnheiður fram spurningunni um það hver er metinn mikilvægur í hinu stóra samhengi sögunnar og hver tilheyrir stuðningsgrindinni? Viðheldur kapítalismi samtímans verkaskiptingu sem minnir á aðstæður verkamanna í fornöld? Í verkinu er gat í formi súlu – óskýr fjarvera – sem býður áhorfandanum að hugleiða hverjum er hleypt í gegn.” Úr sýningarskrá- Innra, með og á milli, texti: Malene Dam)