Aðalsteinn Ingólfsson | Leiðsögn um Hörð

Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn Aðalsteins Ingólfssonar um sýninguna Hörður þann 19. febrúar klukkan 12:15 í Gerðarsafni. Aðalsteinn Ingólfsson, f. 1948, nam listasögu í Bretlandi, Svíþjóð og Ítalíu. Hann kenndi einnig við Myndlista-og handíðaskólann, Listaháskólann og Háskóla Íslands. Hann sinnti gagnrýni og menningartengd skrifum hjá Vísi, DV, Fréttablaðið og RÚV. Hann hefur starfað við Listasafn […]
ÞYKJÓ | Undir og yfir, undir og yfir, undir og yfir…

Verið velkomin á fjölskyldustund með Þykjó laugardaginn 28. febrúar í Gerðarsafni. Smiðjan hentar þátttakendum frá 4 ára aldri…til allavegana 104 ára! Við dáleiðumst inn í ferðalag ullarþráðarins sem hlykkjast upp og niður í vefnaði. Efniviðurinn er litríkur og áferðir textílsins fjölbreyttar. Smám saman myndast leikandi mynstur og hrynjandi. Viðburðurinn er í tengslum við sýninguna Hörður sem […]
Seiðandi raftónlist með Yown / Petrichor

Yown (Jón Friðgeir Sigurðsson) og Petrichor (Alejandro Arias), nemendur úr tónveri Tónlistarskóla Kópavogs, munu koma fram í Gerðarsafni kl. 19.00. Lifandi flutningur frumsamdrar, sveimandi raftónlistar þar sem áhersla er lögð á hljóðheim, rými og stemningu. Viðburðurinn er hluti af Safnanótt í Kópavogi og öll eru hjartanlega velkomin.
Hljóðvefur um Hörð á Safnanótt | Kristófer Rodriguez Svönuson og Daníel Helgason

Tónlistarmennirnir Kristófer Rodriguez Svönuson og Daníel Helgason skapa hljóðheim við sýninguna Hörður föstudaginn 6. febrúar kl. 21:00 í Gerðarsafni á Safnanótt. Inn í hljóðheiminn renna slagverkstónar og rafhljóð, dulúðug og kraftmikil, dansandi og svífandi, leitandi og frjáls en innblásturinn er sóttur í myndlist Harðar Ágústssonar. Gestum er frjálst að ganga um sýninguna á meðan viðburðurinn […]
Leiðsögn á Safnanótt | Hörður

Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn sýningarstjóranna Brynju Sveinsdóttur og Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir) um sýninguna Hörð á Safnanótt föstudaginn 6. febrúar kl. 20:00 í Gerðarsafni. Aðgangur ókeypis og öll velkomin! Hörður Ágústsson (1922-2005) nálgaðist myndlist, hönnun, rannsóknir og kennslu af heildrænni hugsun. Hugsun sem var fjarri því að vera einföld eða […]
Krakkaleiðsögn á Safnanótt

Verið velkomin á krakkaleiðsögn föstudaginn 6. febrúar kl. 18:30 um sýninguna Hörður í Gerðarsafni. Komdu og skoðaðu einstök listaverk Harðar Ágústssonar í fylgd Agnesar Ársælsdóttur, verkefnastjóra fræðslu. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!
Fjölskyldusmiðja á Safnanótt | Skúlptúrar Gerðar Helgadóttur

Komið og kynnist skúlptúrverkum Gerðar Helgadóttur í gegnum list og leik á Safnanótt frá 18:00 – 20:00.Leiðbeinandi smiðjunnar er Örn Alexander Ámundason. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!
Sýningarsalir lokaðir á efri hæð

Sýningarsalir á efri hæð eru tímabundið lokaðir vegna sýningaskipta. Verið er að setja upp sýninguna HÖRÐUR sem opnar 4.febrúar kl: 18:00. Hörður Ágústsson (1922-2005) nálgaðist myndlist, hönnun, rannsóknir og kennslu af heildrænni hugsun. Hugsun sem var fjarri því að vera einföld eða línuleg heldur bar með sér löngun til að má út skil á milli […]
Morgunstund í myndlæsi

Verið hjartanlega velkomin á Morgunstund í myndlæsi fyrir fullorðna föstudaginn 6. febrúar kl. 10:00 í Gerðarsafni, þar sem við tökum fram óvænt verk úr safneign Gerðarsafns og greinum það í sameiningu. Þorgerður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og viðburða í Gerðarsafni, leiðir samræðurnar, sem gestir taka þátt í. Morgunstund í myndlæsi er ný viðburðaröð í Gerðarsafni þar […]
List og náttúra

List og náttúra er einföld smiðja þar sem leitast við að skapa úr náttúrulegum og sjálfbærum efniviði. Smiðjan verður haldin í Náttúrusafni Kópavogs 28. janúar, kl. 16-17:00. Smiðjan er liður af stærra verkefni sem unnið er í samstarfi Gerðarsafns og Náttúrusafn Kópavogs. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar. Börnin vinna með […]
Opnun | HÖRÐUR

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar HÖRÐUR miðvikudaginn 4.febrúar kl. 18:00 í Gerðarsafni. Hörður Ágústsson (1922-2005) nálgaðist myndlist, hönnun, rannsóknir og kennslu af heildrænni hugsun. Hugsun sem var fjarri því að vera einföld eða línuleg heldur bar með sér löngun til að má út skil á milli ólíkra listgreina til að finna sameiginlegan og margslunginn […]
Jeremy Deller: Landlæg hamingja

Í kjarna listsköpunar Jeremy Dellers er löngun til að skapa tengingar. Til að sýna samfélag okkar og þær marglaga flækjur sem hlykkjast um það með töframætti myndlistar. Í verkum sínum leiðir hann saman ólíka þætti, stígur svo aftur og sér hvað verður. Leyfir listinni að verða til í dýnamísku samspili með þeim sem mæta henni. […]