Námskeið | Horft, hugsað og skrifað um myndlist með Jóni Proppé

Verið velkomin á námskeiðið Horfa á, hugsa og skrifa um myndlist með Jóni Proppé fimmtudaginn 30. apríl kl. 18:00–21:00. Á námskeiðinu mun Jón fjalla um ólíkar leiðir til að nálgast greiningu og skrif um myndlist. Þátttakendur munu skoða myndlist úr ýmsum áttum og farið verður yfir hvað fellst í því að greina verk og miðla […]
Fyrirlestur | Studio Studio um grafíska hönnun Harðar

Verið velkomin á fyrirlestur Studio Studio (Arnars Freys Guðmundssonar og Birnu Geirfinnsdóttur) um grafíska hönnun Harðar þann 18. apríl klukkan 14:00. „Hörður Ágústsson (1922–2005) átti afkastamikinn feril á sviði grafískrar hönnunar og er óhætt að telja hann á meðal helstu braut ryðjanda nýrra hugmynda í grafískri hönnun á Íslandi. Hann lagði einnig mikilvægan grunn að […]
Leiðsögn | Jón Proppé

Verið velkomin á leiðsögn listheimspekingsins Jóns Proppé um sýninguna Hörður miðvikudaginn 8. apríl klukkan 12:15. Hörður Ágústsson (1922-2005) nálgaðist myndlist, hönnun, rannsóknir og kennslu af heildrænni hugsun. Hugsun sem var fjarri því að vera einföld eða línuleg heldur bar með sér löngun til að má út skil á milli ólíkra listgreina til að finna sameiginlegan […]
Smiðja | Kórónugerð

Dúskar, fjaðrir, slaufur og strá. Búum saman til skemmtilegar kórónur úr litríkum og skemmtilegum efnivið.Allt efni verður á staðnum og aðgangur er ókeypis. Leiðbeinandi er Systa Lárusdóttir.
Form tala saman – við byggjum heim

Verið velkomin listasmiðjuna Form tala saman – við byggjum heim í Gerðarsafni laugardaginn 28. mars frá kl. 13-15. Í smiðjunni verður leikið með grunnformin á frjálslegan hátt. Hver þátttakandi vinnur þrívíðan skúlptúr eða byggingu úr pappír og límböndum. Leiðbeinandi er Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir myndlistarmaður. Smiðjann er haldin í tengslum við sýninguna Hörður með verkum eftir Hörð Ágústsson. […]
List og náttúra – Litir í náttúrunni

List og náttúra eru skemmtilegar og skapandi smiðjur þar sem við skoðum náttúruna í nýju ljósi! Viðfangsefni þessarar smiðju er litir í náttúrunni. Gestir fara í einfaldan leik sem hjálpar þeim við að koma auga á litbrigði í náttúrunni, og skapa listaverk innblásin af því sem við sjáum. Smiðjan verður í Náttúrusafni Kópavogs 18. mars, […]
Fyrirlestur | Studio Studio um Dieter og Hörð

„Þegar Dieter heimsótti Hörð og sýndi honum verk sín áttaði Hörður sig strax á því að verið væri að flytja inn allra nýjustu hugmyndir í grafískri hönnun og myndlist.“ Verið velkomin á fyrirlestur Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir) um samstarf og áhrif Dieter Roth og Harðar Ágústssonar þann 18. mars klukkan 18:00. […]
Morgunstund í myndlæsi

Verið hjartanlega velkomin á Morgunstund í myndlæsi fyrir fullorðna föstudaginn 6. mars kl. 10:00 í Gerðarsafni, þar sem við þar sem við tökum fram óvænt verk úr safneign Gerðarsafns og greinum það í sameiningu. Þorgerður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og viðburða í Gerðarsafni, leiðir samræðurnar, sem gestir taka þátt í. Morgunstund í myndlæsi er ný viðburðaröð […]
Litafókus með Eygló Harðardóttur

Sjónræn skynjun og vangaveltur um afstæði litanna eru grunnstefin í leiðsögn Eygló Harðardóttur um sýninguna Hörður. Fókusnum verður beint að innbyrðis áhrifum lita á hvern annan í völdum verkum Harðar Ágústssonar, litanotkun verkanna borin saman og og ólík lita-áhrif og lita-hlutföll skoðuð. Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum […]
Leiðsögn | Ingunn Fjóla um form og liti Harðar

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, myndlistarmaður, fjallar um sýninguna Hörður út frá sjónarhóli lita- og formfræði. Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Í formrænni könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í […]
List og náttúra

List og náttúra er einföld smiðja þar sem leitast við að skapa úr náttúrulegum og sjálfbærum efniviði. Smiðjan verður haldin í Náttúrusafni Kópavogs 25. febrúar, kl. 16-17:00. Smiðjan er liður af stærra verkefni sem unnið er í samstarfi Gerðarsafns og Náttúrusafn Kópavogs. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar. Börnin vinna með […]
Gjörningakvöld | Haraldur Jónsson, Sölvi Halldórsson, petals, Gígja Jónsdóttir og Vena Naskrecka

Verið hjartanlega velkomin á gjörningakvöld Gerðarsafns og Hamraborg Festival þann 26. Febrúar klukkan 20:00. Fram koma:Haraldur JónssonSölvi Halldórssonpetals ásamt Sólrúnu Mjöll Kjartansdóttur, Ægi Sindra Bjarnasyni og Ingibjörgu TurchiGígja Jónsdóttir og Vena Naskrecka Sýningarstjórn: Hamraborg Festival / Pétur Eggertsson.Öll velkomin! Um listamennina: Í verkum Haraldar fléttast ólíkar efniskenndir, tungumál og hljóðmyndir saman á margslunginn hátt og […]