Opið í dag

12:00-18:00

Sýningarstjóraspjall | Menning á miðvikudögum

Brynja Sveinsdóttir, sýningarstjóri, leiðir gesti um sýninguna Afrit. Á sýningunni Afrit eru verk sjö samtímalistamanna sem ögra hugmyndum okkar um ljósmyndir sem glugga að raunveruleikanum. Sýningin er í senn könnun á óljósu eðli ljósmyndarinnar og leikur með möguleika miðilsins þar sem látið er reyna á þolmörk hans. Sýningin Afrit er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2020.

Sumarspírur | Listasmiðjur

Menningarhúsin í Kópavogi bjóða upp á listasmiðjur í sumar fyrir börn á grunnskólaaldri. Smiðjurnar hefjast þann 28. júní, eru ókeypis og verða alla þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga, milli 13.00 og 15.00, með fyrirvara um breytingar. Nánari upplýsingar verða birtar vikulega á facebook hópi sumarspíranna (sem er undir sama nafni) og í Kópavogspóstinum. Leikið verður með […]

Opnun | Pure Deli

Veitingastaðurinn Pure deli opnar útibú í Gerðarsafni fimmtudaginn 15. nóvember. Pure deli hefur verið starfræktur í Urðarhvarfi um nokkurt skeið og við fögnum því sannarlega að fá huggulegan stað, frábærar veitingar og góða stemningu á jarðhæð safnsins. Á boðstólum verða hollar samlokur og vefjur, súpur og djúsar en auk þess gott kaffi og meðlæti. Um […]

Menning á miðvikudögum | Fullveldið og samstaðan

Sara Öldudóttir sýningarstjóri leiðir gesti um sýninguna „Einungis allir“ sem stendur yfir í Gerðarsafni. Sýningin er liður í listahátíðinni Cycle en þema hátíðarinnar, sem stóð yfir frá 25. – 28. október, var „Þjóð meðal þjóða“.  Á hátíðinni var áleitnum spurningum sem varða frelsisbaráttu og þjóðernishugmyndir í samhengi við 100 ára fullveldisafmæli Íslands velt upp. Sýningin […]

Þitt eigið vídeóverk | BYOB

Gerðarsafn í samvinnu við Midpunkt og Curver Thoroddsen leiða vídeóviðburð að fyrirmynd BYOB (Bring Your Own Beamer) á Safnanótt. Listamönnum, kvikmyndagerðarmönnum, listnemum og öðrum áhugasömum er boðið að taka þátt og koma með sitt eigið vídeóverk til sýningar á meðan á viðburðinum stendur. BYOB (Bring Your Own Beamer) er hugmynd að opnu sýningarverkefni sem stofnað […]

Líkamleiki | Listamannaspjall

Listamannaspjall með Eirúnu Sigurðardóttur, Unu Margréti Árnadóttur og Erni Alexander Ámundasyni í Gerðarsafni. Listamennirnir munu ræða verk sín á sýningunni Líkamleiki og vinna þau öll með gjörninga í verkum sínum. Sýningin Líkamleiki er hugleiðing um líkamann eins og hann birtist í samtímalist. Á sýningunni eru valin verk eftir listamenn sem eiga það sammerkt að vísa […]

Menning á miðvikudögum – hádegisleiðsögn

Miðvikudaginn 13. júní kl. 12:15 verður boðin hádegisleiðsögn um sýninguna Gerður: Yfirlit með Kristínu Dagmar Jóhannesdóttur, safnstjóra sem einnig sýningarstýrði sýningunni í samstarfi við Brynju Sveinsdóttur. Á sýningunni er sjónum beint að fjölbreyttum listferli og ævi Gerðar, allt frá námsárum hennar til síðustu æviára, en hún lést fyrir aldur fram aðeins 47 ára gömul. Gerður […]

Teiknismiðja I Fjölskyldustund

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir leiðir teiknismiðju inni í sýningarsölum Gerðarsafns þar sem nú stendur yfir sýningin Útlína. Lóa er reynslumikill teiknari og kennir ýmsar teikniæfingar ásamt því að fara í gegnum æfingar sem eru hluti af sýningunni.