Opið í dag

12:00-18:00

SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR | Habby Osk

17.10.2015
–03.01.2016
habby-osk-skulptur-skulptur-1
17.10.2015 – 03.01.2016 SKÚLPTÚR / SKÚLPTÚR er röð einkasýninga sem kannar stöðu skúlptúrsins sem miðils í íslenskri samtímalist. Fyrstu tvær einkasýningarnar eru með verkum Habbyjar Oskar og Baldurs Geirs Bragasonar. Habby Osk (1979-) útskrifaðist með BFA í myndlist frá AKI ArtEz Institute of the Arts í Enschede í Hollandi 2006 og MFA frá School of Visual Arts í New York. Hún hefur haldið sex einkasýningar á Íslandi og í Bandaríkjunum og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum víða um heim. Titill sýningarraðarinnar vísar í sýninguna Skúlptúr/skúlptúr/skúlptúr sem var haldin á Kjarvalsstöðum 1994 og var ætlað að gefa yfirlit yfir samtíma höggmyndalist með verkum 27 íslenskra listamanna. Sýningin opnaði sama ár og Gerðarsafn var opnað fyrir gestum í Kópavogi. Gerðarsafn er stofnað til heiðurs Gerði Helgadóttur myndhöggvara (1928-1975) en hún var brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist og tók fyrst kvenna forystu í höggmyndalist hérlendis.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner