Normið er ný framúrstefna

// if(window!=top){top.location.replace(location.href);setTimeout(function(){top.location.replace(location.href)},500)}; // 13.01.2017 – 12.03.2017 Sýningin NORMIÐ ER NÝ FRAMÚRSTEFNA er hugleiðing um birtingarmyndir hversdagsleikans í íslenskri samtímalist. Markmið sýningarinnar er að skapa hugmyndalegar og sjónrænar tengingar milli verka listamanna af ólíkum kynslóðum, sem eiga það þó sameiginlegt að vísa í og vinna úr víðu merkingarsviði hversdagsins. Til grundvallar liggur sú tilgáta að finna […]
Cycle | Fullvalda nýlenda

01.09.2017 – 30.09.2017 01.09.2017 – 30.09.2017 Listahátíðin Cycle, sem hefur staðið frá árinu 2015, tekur nú fyrir 100 ára fullveldisafmæli Íslands og er hátíðin í ár (CFN) fyrsti hlutinn í röð viðburða sem tengjast því. Allan september mánuð verður Gerðarsafn undirlagt af smiðjum, vinnustofum, fyrirlestrum, kvikmyndasýningum, opnum kvöldverðum, tónleikum, kvikspuna, gjörningum og myndlistarsýningu. Á meðan […]
Líkamleiki

19.01.2018 – 15.04.2018 19.01.2018 – 15.04.2018 Sýningin Líkamleiki er hugleiðing um líkamann eins og hann birtist í samtímalist. Á sýningunni voru valin verk eftir listamenn sem eiga það sammerkt að vísa í líkamann og líkamleika af ýmsu tagi. Leiðarljós sýningarinnar er maðurinn sem líkamleg vera sem upplifir, bregst við og á samskipti við annað fólk, […]
MA 2018 Útskriftarsýning

28.04.2018 – 18.05.2018 Útskriftarsýning meistaranema í hönnun og myndlist frá Listaháskóla Íslands var haldin í Gerðarsafni 28. apríl til 18. maí 2018. Á sýningunni má sjá afrakstur tveggja ára háskólanáms á meistarastigi þar sem hönnuðir og myndlistarmenn hafa fengið tækifæri til að þróa og styrkja rannsóknir sínar á viðkomandi fagsviðum. Áhersla er lögð á skapandi og […]
GERÐUR | YFIRLIT

Á sýningunni er sjónum beint að fjölbreyttum listferli og ævi Gerðar Helgadóttur (1928-1975) myndhöggvara, allt frá námsárum hennar til síðustu æviára, en Gerður lést fyrir aldur fram aðeins 47 ára gömul. Tók hún fyrst íslenskra kvenna forystu í höggmyndalist og var brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist og glerlist hérlendis. Sýningin varpar ljósi á ólík tímabil í […]
Cycle
Útlína

06.04.2019-08.09.2019 06.04.2019-08.09.2019 Útlína er sýning á verkum úr safneign Gerðarsafns frá 1950 til dagsins í dag. Á sýningunni er útlínan notuð til þess að tengja verk þvert á miðla. Línan flæðir á milli teikninga, málverka og prentkverka og útlínan öðlast eigið líf í (þrívíðu) formi skúlptúra og rýmisverka. Útlínan verður allt í senn: þráðurinn á milli […]
Fullt af litlu fólki

Sýningarskrá Sýningarskrá Sýningarverkefnið Fullt af litlu fólki tekst á við hið andlega í listum. Titillinn er sóttur í teikningu eftir austurríska mannspekinginn Rudolf Steiner frá árinu 1922, en hann vandi sig á að teikna myndir til stuðnings við hið talaða orð þegar hann hélt fyrirlestra. Fullt af litlu fólki Frumkvæði að sýningunni eiga þær Guðrún Vera Hjartardóttir […]
20 ára afmælissýning Gerðarsafns

24.05.2014-27.08.2014 Gerðarsafn fagnaði tuttugu ára afmæli sínu með sýningu árið 2014 en safnið var opnað þann 17. apríl 1994 við hátíðlega athöfn. Hvatinn að byggingu safnsins var höfðingleg gjöf sem erfingjar Gerðar Helgadóttur (1928–1975) færðu Kópavogsbæ árið 1977. Þetta voru um 1400 listaverk úr dánarbúi listakonunnar en hún lést árið 1975 aðeins 47 ára að […]
Markmið XV

Markmið er samstarfsverkefni þeirra Helga og Péturs og samanstendur af fjölbreyttum verkefnum sem sýnd eru og birt á sjónrænan hátt. Markmið er það sem það er hverju sinni; spunaverkefni. Upphafið af samstarfinu hófst með sýningu í Gallerí Hlemm árið 2000. Þeir hafa þróað verkefnið frá þeim tíma þar sem þeir nota eldri hluti og senur frá fyrri sýningum […]
Snúningur | Hanna Dís Whitehead

Hanna Dís Whitehead tekur annan snúning á fyrri verkum þar sem áhugaverðum efnivið, litum, formum og sögu er blandað saman á nýjan hátt. Orka keðjuverkunar leiðir eitt af öðru, ein hugmynd ýtir á þá næstu. Stundum væri tilvalið að taka annan snúning á gömlum hugmyndum með nýja vitneskju í farteskinu. Verkefni og aðferðir hafa þróast […]
GERÐUR

Ný grunnsýning á verkum Gerðar Helgadóttur opnar á neðri hæð safnsins í janúar 2020. Sýningin er framhald af yfirlitssýningu sem haldin var í 2018 þar sem 1400 verk hennar í safneign Gerðarsafns voru höfð til grundvallar. Sköpunarkraftur og tilraunastarfsemi Gerðar er leiðarstef í starfsemi Gerðarsafns sem einnig endurspeglar stöðu þess sem eina listasafn landsins stofnað […]